1000 koss nótt er lag á samnefndri plötu með tónlistarmanninum Bubba Morthens. Platan kom út þann 11. október 2003. 1000 kossa nótt varð vinsælasta lagið á allri plötunni líklega þekkja flestir (fullorðnir) Íslendingar þetta lag.
Bubbi Morthens er einn ástsælasti söngvari og lagahöfundur Íslands. Hann hefur verið þekktur í íslensku tónlistarlífi síðan árið 1980. Hann hefur verið meðlimur í ýmsum hljómsveitum, meðal annars Utangarðsmönnum og Egó. Bubbi hefur selt fleiri plötur á Íslandi en nokkur annar tónlistarmaður, enda hefur hann gefið út plötu á nánast hverju ári frá því að fyrsta platan kom út árið 1980 og hann er enn að.
Hér er PDF-skjal með lagatextanum og verkefninu sem þú getur prentað út ef þú vilt.