Velkomin í fyrstu kennslustundina þína á B2 stigi.
Á þessu stigi förum við minna í málfræði og meira í praktíska hluta tungumálsins og orðaforða.
Við skoðum ýmsar greinar, fréttir og fróðleik um allt milli himins og jarðar.
Erfið orð og orðtök verða tekin fyrir en gert er ráð fyrir að nemendur leiti sér upplýsinga um önnur orð sem þeir þekkja ekki enn t.d. með orðabókum á netinu.
Við mælum með því að endurtaka texta, lesa upphátt og svara spurningum fyrst munnlega til að þjálfa tal, sem annars er erfitt að gera í bókum og á vefsíðum.
Við byrjum þessa kennslustund á að lesa grein af Wikipediu um Perú:
Perú er land í vesturhluta Suður-Ameríku, með landamæri að Ekvador og Kólumbíu í norðri, Brasilíu í austri, Bólivíu í austri, suðaustri og suðri og Chile í suðri. Í vestri liggur landið að Kyrrahafinu.
Í Perú stóð Norte Chico-menningin, elsta fornmenning Ameríku, frá 30. öld f.Kr. til 18. aldar f.Kr. Þar var líka vagga Inkaveldisins þar til Francisco Pizarro lagði það undir Spán 1532 til 1536. Síðasti Inkaleiðtoginn, Túpac Amaru, var þó ekki drepinn fyrr en 1572. Spænska heimsveldið gerði Perú að varakonungsdæmi með Líma sem höfuðborg. Þaðan var öllum nýlendum Spánar í Suður-Ameríku stjórnað. Landið fékk sjálfstæði í kjölfar herfara José de San Martín og Simón Bolívar árið 1821. Um miðja 19. öld batnaði efnahagur landsins vegna útflutnings á gúanói en það gekk til þurrðar um 1870. Perú beið ósigur fyrir Chile í Kyrrahafsstríðinu 1879–1883. Eftir heimskreppuna 1930 skiptust borgaralegar stjórnir og herforingjastjórnir á að fara með völd. Eftir 1979 hefur lýðræði verið virkt en á sama tíma hafa staðið yfir hörð innanlandsátök vegna starfsemi eiturlyfjahringja og skæruliðasamtaka.
Íbúar Perú eru rúmlega þrjátíu milljónir og þar af búa tæplega þrjár milljónir í höfuðborginni, Líma. Spænska er opinbert tungumál landsins þótt frumbyggjamálin quechua og aymara njóti einnig opinberrar stöðu. Yfir 80% íbúa eru rómversk-kaþólskir. Um helmingur starfa er í þjónustugeiranum en helstu útflutningsvörur landsins eru málmar á borð við kopar, sink og gull, auk jarðolíu.
Lestu textann upphátt. Hlustaðu svo á hann hér 🎧 og fylgstu með.
vesturhluti kk = western part
landamæri kvk = a border
fornmenning kvk = an ancient culture
f.Kr. = before Christ (BC)
leggja undir sig = to conquer
Inkaleiðtogi kk = an Inca ruler
heimsveldi hk = an empire
varakonungsdæmi hk = a spare kingdom
nýlenda kvk = a colony
sjálfstæði hk = independance
í kjölfarið = in the wake of, as a result
herför kvk = a campaign
efnahagur kk = economy
útflutningur kk = export
að ganga til þurrðar = run out
bíða ósigur = to lose
heimskreppa kvk = global depression
borgaralegur = civil
herforingjastjórn = a military dictatorship
að fara með völd = to be in power
lýðræði hk = a democracy
að standa yfir = ongoing, current
innanlandsátök kvk = domestic conflicts
eiturlyfjahringur kk = a drug ring
skæruliðasamtök kvk = guerilla organization
rúmlega = roughly, just over
tæplega = roughly, just under
opinbert tungumál hk = national or official language
frumbyggjamál hk = language of the natives
þjónustugeiri kk = service sector
útflutningsvara kvk = export product
málmur kk = metal
jarðolía kvk = crude oil
Prófaðu að búa til þrjár setningar úr þremur orðanna hér fyrir ofan.
Hægt er að fá setningarnar metnar á langcorrect.
Svaraðu spurningunum um textann. Ef þú getur er gott að svara munnlega fyrst og skrifa svo svarið niður.
Sjá svör neðst á síðunni.
Þátíð (past tense)
Dæmi úr textanum:
Æfing:
Breyttu í þátíð:
Svör eru neðst á síðunni.
Svaraðu upphátt og ef þú vilt meiri æfingu getur þú skrifað svörin niður líka.
Hægt er að fá skrifleg svör metin á langcorrect.
Talaðu í 1 mínútu um:
Land sem þú þekkir
Reyndu að nota:
Lesskilningur
Málfræði