Stig B2

Æfing 2: Ljós í glugga 🏠

Í þessu verkefni horfir þú á atriði úr íslenska grínþættinum Svínasúpunni og æfir:

  • hlustun
  • orðaforða
  • tal
  • skilning á íslenskum húmor

Áður en þú byrjar: Athugaðu að áfengi er drukkið í myndbandinu sem fylgir þessu verkefni. Ef þú ert viðkvæm(ur) fyrir slíku skaltu fara frekar í næsta verkefni. 

💭 Áður en lengra er haldið

Reyndu að svara þessum spurningum í huganum, en það má líka skrifa þetta niður og hægt er að fá endurgjöf (e. feedback) á langcorrect.com

Hefur þú farið í partý?
  • Hvað gerir þú venjulega á laugardagskvöldum?
  • Ferðu oft út á kvöldin?
Hvað heldur þú að…
  • ,,bærinn sem aldrei sefur” þýði?
  • gæti gerst í svona atriði?

🐷 Um Svínasúpuna

Svínasúpan voru grínþættir sem voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2003-2004. Þættirnir byggja á stuttum sjálfstæðum grínatriðum. Þáttaraðirnar voru tvær talsins og léku margir af helstu grínleikurum landsins í þáttunum, þau Auðunn Blöndal, Edda Björg, Gulla, Pétur Jóhann, Sveppi, Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson. Þættirnir urðu mjög vinsælir og sumir frasar lifa enn með þjóðinni. 

📚 Orð & slangur

 

Í myndbandinu heyrir þú svolítið af slangri. Hér eru útskýringar á því. 

🥳 partýfílingur – að vera í stuði fyrir partý. Komið af ensku orðunum party og feeling.

🎉 partýpleis – staður þar sem fólk djammar eða þar sem er alltaf partý. Líklega ekki mikið notað í dag. Komið af ensku orðunum party og place.

 

🍻 að djamma – að fara í partý eða á skemmtistað / skemmta sér. Mikið notað slangur hjá þeim sem fara reglulega niður í bæ að skemmta sér. Komið af enska orðinu “to jam”, en merkingin hefur breyst.

🌃 bærinn sem aldrei sefur – staður þar sem alltaf er líf og fjör

🎥 Horfðu á myndbandið

Horfðu á myndbandið og svaraðu svo verkefnunum fyrir neðan.

Verkefni 1

Rétt eða rangt
  1. Mennirnir eru að leita að veitingastað
  2. Klukkan er fjögur
  3. Konan er með partý heima hjá sér
  4. Stelpan er þriggja ára
  5. Mennirnir hætta að leita

Verkefni 2

Finndu setningarnar

Hvaða persóna segir:

  1. „Þetta er bærinn sem aldrei sefur“
  2. „Það eru allir farnir að sofa“
  3. „Góða nótt“
  4. „Það þýðir partý“

✍️ Stutt ritgerðarspurning

  • Heldur þú að þetta sé dæmigerður íslenskur húmor? Af hverju / af hverju ekki?

Hægt er að fá endurgjöf á langcorrect.

🗣️ Tjáning

Reyndu að svara spurningunum upphátt. 

Endursögn

Segðu frá atriðinu í eigin orðum.

  • Hvað gerist?
  • Hverjir eru karakterarnir?
  • Hvernig endar atriðið?
Skoðun
  • Finnst þér þetta fyndið?
  • Hvers konar húmor finnst þér skemmtilegur?
1 mínúta ⏱️

Talaðu í 1 mínútu um:

„Skemmtilegt kvöld sem þú manst eftir“

🎭 Hlutverkaleikur

Búðu til samtal milli tveggja einstaklinga þar sem önnur persónan vill halda áfram að djamma en hin vill fara heim að sofa. 

Lestu svo samtalið upphátt. 

✍️ Ritgerðarspurning

Skrifaðu 5–10 setningar um:

„Fyndið eða skrýtið kvöld sem þú hefur upplifað“

Dæmi um spurningar sem væri gott að svara:

  • Hvar varstu?
  • Hverjir voru með þér?
  • Hvað gerðist?
  • Af hverju manstu eftir kvöldinu?
Vel gert!

Lausnir

Verkefni 1 – Rétt eða rangt

  1. Rangt
  2. Rétt
  3. Rangt
  4. Rétt
  5. Rangt

Verkefni 2 – Finndu setningarnar

  1. Maðurinn í rauða bolnum
  2. Maðurinn í peysunni
  3. Konan
  4. Maðurinn í rauða bolnum
Næsta æfing >